... og haldið þið síðan kjafti!
13.11.2006 20:53:08 / egill23

hoho!

Vá hvað það er langt síðan maður hefur skrifað á þessa sómasíðu (það var ekki út af engu að hún fékk friðarverðlaun nóbels 1872). Ég hef bara verið svo rosalega upptekinn við að glápa á ultraporn og horfa á stæðsta kerti í heimi brenna niður (þess má geta að það er ekki lengur stæðst því að það brann niður, við munum sakna þess í hjartanu... gefið ykkur 2 mín til að jafna ykkur og lesið svo áfram).

Ætlaði nú bara svona að þakka fyrir snilldar afmælisboð hjá sjálfum mér um daginn. Takk fyrir afmæliskveðjurnar sem ég fékk og þið sem að munduð ekki eftir því þá skal ég sko pissa í klakabox+frysta það lauma því í drykkinn ykkar næst þegar þið farið á makdónalds, múhahahha!

Allavega, myndir úr boðinu hérna á flippanum til vinstri...
Skrifa voða sjaldan hérna en ég skal lofa að næsta færsla mun birtast innan 30 daga... ef ykkur liggur á að heyra hvað er að frétta af mér þá skulið þið bara spjalla við the lovemæstró á msn :lol:  egilljonasson@hotmail.youknowtherest


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 12:18:58 / egill23

Yes!

Myndir frá árshátíðinni komnar!

myndir segja svo margt þannig að kíkjið bara á þær og haldið síðan kjafti yfir því að ég nenni ekki að skrifa :D ég er puttabrotin á öllum eftir nonna handrukkara og það er erfitt að skrifa með táslunum : )

endilega halastjarnið (comment) um myndirnar

okí bæ

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 14:33:18 / egill23

Heimapróf

Er ekki búin að sofa mikið síðustu nætur vegna heima prófs og tölvuleikja spilerís. Er búin að vera að frumlesa heimildir sem að ég þurfti að notast við i heimaprófinu. Tók mig svo til og pikkaði þetta heima próf inn á svona eins og einni nóttu + sex tímum í morgun og framyfir hádegi. Ég er búin að hafa viku til að gera þetta en er búin að hugsa á hverjum degi... æ ég geri þetta á morgun :haha:

Varð svo alveg ruglaður i fyrrinótt þegar að nýja erkióvinkona mín var að vekja mig með látum: lítið á það hérna

Annars er bara árshátíð hjá okkur í átvr næstu helgi... þannig að það verða komnar inn vandræðalegar myndir hérna á sunnudaginn ;)



» 4 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 18:53:41 / egill23

Sick

jæja, matarboð og djamm um helgina. Virkilega krúttó alltsaman hjá honum Eymari. Matur og vín alltsaman til sóma og svo mikið var borðað að manni langið bara að fá sér lúr eftir á. Jæja er í tímaþröng, myndir segja meirra en 3 orð... bætti inn myndum úr matarboðinu og úr staffapartíinu sem var heima hjá mér um daginn.

;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 13:36:55 / egill23

Kornflex færsla 2

... vaknaði at the crack of noon alveg tilbúin að takast á við daginn, fann lífsþróttinn í æðum mér og hlakkaði til að takast á við verkefni dagsins. Mamma sagði alltaf að mikilvægasta máltíð dagsins væri morgunmatur og því fór ég með ákveðnar væntingar inn í eldhús. Vaskaði mér upp skál og skeið og helti korflexi í skálina+skvettu af rúsínum. En um leið og ég opnaði ísskápin áttaði ég mig á misstökunum sem að ég hafði gert. Ég hafði gleymt að athuga hvort að það væri til mjólk.

Þar fór dagurinn í rúst, engin mjólk til. Eftir eins og klukkutíma grátur og sjálfsmeiðingu út af því hvernig komið var fyrir mér fór ég svo í sturtu og hressti mig við. Ég lofði sjálfum mér að þetta myndi aldrei aftur koma fyrir mig og er nú tilbúin að takast á við daginn, þrátt fyrir að hafa þurft að fá mér gúrku og hrökkkex í morgunmat.


                  húha!

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 09:53:12 / egill23

óþolandi þegar að...

maður er búin að busta tennurnar og fattar að það er enþá fast kornflex í á milli þeirra...

damn you kornflex, you will be the death of me...



» 5 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 21:04:00 / egill23

Captain Hi-Top strikes again!

Trúi varla að ég sé að taka þátt í svona klukk starfsemi, þetta er náttúrulega só last year! (með tilheyrandi gay handahreifingu). en jæja....

4 störf sem ég hef unnið
Uppvaskari
Þjónn
Afgreiðslumaður/vínábendari
Lady plíser


4 bíómyndir sem ég get horft aftur og aftur
Ace Ventura: Pet detective
Wayne´s World
Office Space
Terminator 2

4 staðir sem ég hef búið á 
Kaupmannahöfn
Kópavogur, í engihjalla í ghettóinu.. keep it real með ak 47 undir koddanum og svona
Egilsstaðir - bara í 3 vikur en samt
Grenimel í westside í rvk... besti staður í heimi til að búa á... fer aldrei! victory!

4 sjónvarpsþættir sem ég elska að horfa á
Futurama (ó já again and again, kann fyrsta þáttin utan að, is that sad og cool?)
Arrested Development
Simpsons ~ sérstaklega nýju þættirnir, þeir eru svo grófir og flottir... klassíkin alveg í lagi líka sko :haha:
Friends ~ klassísku þættirnir þar sem að Ross eða Rachel eru ekki að væla allan tíman eru bara snilld sko

4 staðir sem ég hef farið á/til
Danmörk
Spánn
Bandaríkin/Orlando
Kanarí (hluti af spánn en samt... allt annað dæmi mar, láttu mig í friði)

4 vefsíður sem ég skoða daglega
http://b2.is/
blog hringurinn, the usual suspects
http://www.fjandinn.com/arthur/
www.asianslutsgonewild.com

4 besti maturinn minn
Nautasteik ~ helst T-Bone eða Nautalund steikt bloddí as hell með með engu öðru nema kriddsmjöri og bakaðri kartöflu (vá ég fékk vatn í munninn við að skrifa þetta )
2faldur hamborgari með peppó, beikoni, grænmeti, osti og sósu steiktur medium rear af meistaranum sjálfum, mér
Heimatilbúin pizza með því sem var á handborgaranum
Kjúklingabringur með karrísósu og hýðishrísgrjónum

4 staðir sem ég vildi vera núna
Í sturtu með þér
Að dansa hókí pókí í góðra vina hópi með öl í annari og pylsu í hinni
Í ræktinni
Þarf að gera no: 2 þannig að ég segi bara á klósettinu...


on that note... ég er farin á klósettið.. hafið góða helgi og ekki fara ykkur að voða  :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 21:05:39 / egill23

Update

ok... var að setja inn myndir úr bústaðarferðinni sem farið var í í janúar... geggjaðar myndir og margar hverjar mjög áhugaverðar :klikk:...
Kíkið á þær hérna http://pg.photos.yahoo.com/ph/egilljonasson123/my_photos

Endilega segið hvað ykkur finnst um þær :D

Kær kveðja, Jónatann frá ytri framnesi


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 18:45:16 / egill23

Bob lablaw law blog

Já já, fór í ræktina í gær til að hrista af mér síðustu þynnkuna eftir helgina. Stórskemmtinleg ferð enda margt ljóst þar á seiði. Ferðin var samt heldur endaslöpp því að þarna var maður sem að klikkaði algerlega á aðal reglunni í ræktinni. Sú regla er að sjálfsögðu að maður verður alltaf að vera í þröngum boxerum í ræktinni ef að mjög stuttar stuttbuxur verða fyrir valinu. En jæja, þarna semsé situr einhver maður, einmit í stuttum stuttbuxum (þið vitið, svona 80´s style) og er að gera magaæfingar í svona tæki sem maður sittur uppréttur í. Það væri nú varla frásögu færandi nema hvað að önnur kartaflan lafði bara út og helmingurin af gúrkunni.

              
                             Ekki beint nýjasta tíska

Hvað á maður að gera? Fara og biðja hann um að hafa músina í holuni eða bara að þegja yfir þessu? Ég kaus að gera þetta ekki að mínu vandamáli sem að var nú alveg ágætt þar sem að vandamálið leysti sig sjálft þegar að tvær unglingstúlkur gengu hjá og fóru að skellihlæja með tilheyrandi handahreyfingum og "dísesum". Maðurinn varð allur hin skammarlegasti og fór inn í klefa og hefur eflaust bölvað konunni sinni fyrir að hafa ekki pakkað niður síðu stuttbuxunum hans.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 12:49:26 / egill23

Times like these

Jæja, önnur vika, önnur helgi... what to say, what to say...

Vikan var í sjálfu sér varla frásögu færandi, ekkert spennó að gerast nema þá kannski eitthvað sem ég mann ekki eftir... sem sé ekkert þannig séð... nema... æ nú er ég farin að fara í hringi... lets just cut to the good stuff....

Byrjaði herlegheitinn með smá pooli+öl á fimmtudaginn. Massa fínt bara ;)

Svo var það bara vinna á föstudeginum, ég var settur í aðstoða fólk og stóð mig með mikilli príði. Finnst samt alveg óþolandi þegar að fólk skynjar ekki persónulega svið annara. Það kom þarna kona og hún var hress. Hún var svo hress að þegar að hún var að spyrja mig að einhverju fannst henni nauðsýnlegt að koma alveg upp við mig, þetta var svona dæmi þar sem að ég gat fundið á andfíluni hvað hún borðaði í hádegismat.... mjög nice, endaði með því að ég seldi henni bara það fyrsta sem ég sá og benti henni á næstu sjoppu+breathmints.
Svo var bara þetta hefðbundna djamm á föstudaginn, ætlaði að sjálfsögðu að vera komin heim um 3 leitið því að ég var að fara að vinna á laugadeginum... það gekk ekki alveg eftir og ég var ekki komin heim fyrr en um sex leitið, alveg SD(Super Drunk) og alveg að gera góða hluti... sofnaði svo ekki fyrr en um átta leitið... :klikk:

Svo var það laugadagurinn, vaknaði sem sé alveg í góðum gír eftir tveggja tíma svefn og þurfti að ganga til mána til að ná í brumm brumminn. Vægast sagt erfiðasti og leiðinlegasti dagur sem ég hef átt í vinnuni, amk eftir að það fór að renna af mér ;)
Eftir vinnu var svo kíkt til Eymars draumagosa og tæmt úr svona eins og nokkrum flöskum. Þá var komið að ruglinu. Jói gaf Mána svona eins og eina litla krúttó laumu (= ýta létt í kynfæri viðtakanda til að bregða honum, ekki kynferðisleg hegðun) í liminn. Máni skildi ekki alveg hvað lauma gengur út á og kíldi Jóa þéttingsfast í pungin og sagði "Lauma!"
Jói var ekki hamingjusamur með þetta framferði og var allur í keng á gólfinu að reyna að jafna sig.
Svo var farið í nýjan leik sem aðvar allur hin skemmtinlegasti, amk fyrir Mána. Húsráðandi fékk að rassskella alla með eldhúsbretti. Hann smellhitti Mána svo vel að hann fékk rauðan bossa eftir höggið. Svona eftir á að hyggja var þessi samkoma svona frekar gay og ég verð að fara að hugsa minn gang :haha:
Svo var það bara bær og bjór með öllu tilheyrandi;)

Thihi, alger snilld.





» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 14:43:03 / egill23

Ferðalagshelgi með meirru!

Jamm. En önnur snildar helgin að baki. Þetta byrjaði alltsaman á fimmtudagskvöldið. Þá fór ég til Steina í vínsmakk. Smakkaðar voru 5 tegundir af víni og þar af einn sem var smökkuð blint. Ég var rosalega duglegur og með smá aðstoð frá Gest náði ég að komast að því að þetta var J. Lohr. Ótrúlegt en satt, það var rétt hjá mér. Verður að teljast góður árangur fyrir byrjanda :lol: Að smakkinu var haldið á Corona kvöld á glaumbar. Þar var ekkert til sparað og fimm öl í fötu keypt handa öllum og djammað fram í rauðann dauðann, eða amk til 1 en þá lokaði staðurinn. Ógeðslega gaman, við strákarnir tókum okkur til og gerðum allt vitlaust á dansgólfinu með handbremsudönsum og viltum snúningum. LeyniBENSíNdansin ~ jíha!

Á föstudaginn var svo farið í leik með Mána og Steina + mökum sem felst í því að henda þungri kúlu í tíu hvítt prikk. Máni varð sigurðurvegari en mér var alveg sama því að ég var ekkert að reyna á mig. ;) Keila er bara leiðinleg :p thihi Svo var farið í annan leik. Í þeim leik er notað prikk til að lemja í fullt af litlum kúlum sem að maður á að reyna að láta fara ofan í holur. Ég varð sigurðurvegari í 9 ball eins og vanalega því að engin getur unnið mig nema eiginlega alltaf. Þegar ég vinn ekki er ég bara ekki að reyna á mig þannig að það er ekki tekið með.

Laugadagurinn var svo victory dagur í vinnunni. En tilhlökkun vegna fyrirhugaðrar sumarbústaðarferðar var alveg í hámarki þannig að maður var ekki alveg með hugan við vinnuna. Strax eftir vinnu var svo brunað upp í sumarbústað rétt hjá selfoss. Við hittum samt enga af þessum goðsagnarkenndu hnökkum sem að eiga víst að halda sig í kring um bæinn. Við sökknuðum þeirra samt ekkert því að það var svo gaman í bústaðnum. Steinn kom greinilega með það í huga að drepa einn af sínum vinum í ferðinni og byrjaði á því að reyna að kyrkja mig. Honum tókst það ekki og hann varð en reiðari fyrir vikið. Þá tók hann upp á því að reyna að fella mig með leynibragði. Ég get ekki sagt að ég hafi komist frá því óskaddaður enda er ég með marbletti um alla fæturna og er illt í hálsi+baki. Ég skulda honum enþá gott högg í síðuna þegar hann á síst von á því. Svo tók hann upp á því að reyna að drepa Hildi með leynisnjóboltakasti á meðan hún var í heitapottinum. Það heppnaðis næstum hjá honum enda hitti hann beint í augun á henni og hún varð ekki ánægð með það. Annars var bara drukkið, dansað, drukkið meirra, farið í pottinn, spilað alls konar nýmóðins leynispil og farið í leikinn "leynitrúnó í potinum". Sá leikur var rosalega vinnsæll. Tók með bongótromu til að semja fallegt lag um hvað við myndum sakna Mána og Eymars mikið en hún rifnaði þannig að það var lítið um það... það er hugurinn sem gildir...

anyway...

ég læt inn myndir af herlegheitunum bráðlega....

friður úti...


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 15:21:15 / egill23

Vei!-slupartí

Jebb. Sérdeilis ánægjuleg helgi að baki. Eftir hefðbundna vinnu á föstudaginn og laugadaginn var ráð að kíkja út í smá tjútt. Steinn hélt upp á afmælið sitt á laugardagkvöldið þar sem að drykkja og skemmtun var í fyrirrúmi. Það gæti hugsast að ég hafi drukkið of mikið koníak en ég er ekki viss því að ég mann það ekki. Ég mann hinsvegar þegar að ástæða þótti til að fara út og skjóta upp svona eins og einni risa raketu til að Steinn myndi nú ekki fara í afmælisköttinn. Það gekk vægast sagt mjög illa. Steinn hetja kveikti undir helvítinu sem að sprakk á staðnum. That´s right... hún fór ekki upp í loftið áður heldur sprakk bara beint fyrir framan okkur öll. Fire in the hole!

Næstu andartök fóru í mikinn glundroða og asnagang þar sem að flestir voru að athuga hvort þeir væru enþá á lífi+með alla útlimi í lagi. Ég og Eymar vorum þeir einu sem að höfðum misst aukalíf en við fengum báðir sprengjubrot í hausinn. Við hörkuðum þetta af okkur og eftir smá væl var allt komið í samt lag. Fögnuðum því með því að fara í skemmtinlegan leik sem að gekk út á að henda melónu á milli...

Svo var stefnan tekin á bæinn. Fórum á hressó í hressandi stemmara+danspartí. Dvölin þar var soldið dramantísk en engu að síður mjög skemmtinleg... frétti daginn eftir að Steinn og Eymar hefðu farið í bæinn klæddir eins og Bubbi byggir og Elvis.... og ég hélt að ég hefði drukkið helst til mikið... :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 00:46:18 / egill23

Thihi

Jebb, var í Hreyfingu áðan. Það var mikið að gera miðað við að klukkan var farin að ganga átta á föstudagskveldi og ég þurfti að berjast fyrir því að fá að komast inn um hliðið. Þegar ég var loksins komin að hliðinu var ansi þröngt á þingi og þegar að ég var að reyna að troða mér framhjá útgöngu hliðinu lenti ég í aldeilis leiðinlegu óhappi. Maðurinn sem að var að ganga út ýtti fast í hliði og það vildi ekki betur til en það að helvítis hliðið fór beint í klofið á mér. Ég fór alveg í hönk og öskraði "ahhh, konfektið mitt!!!" maðurinn varð alveg eins og sveskja og reyndi að byðjast afsökunar. Ég tók það að sjálfsögðu til greina en vissi samt að sársaukinn væri á leiðinni! flýtti mér inn í klefa og fór að gráta smá í sálinni af sársauka... eins og Ford Fairlane sagði í myndinni The Adventures of Ford Fairlane frá 1990...


"It´s...like masturbating with a cheese grater: slightly amusing, but mostly painful. "

:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 16:37:22 / egill23

Sundferð

Jæja Fór í sund um daginn með Robba og Finnsa frænda. Í alla staði vel heppnuð ferð þar til að ég var á leiðinni inn í klefa eftir sundið. Sjálfvirku dyrnar voru ekki upp á sitt besta og ég var að drífa mig svo mikið því að það var skítakuldi úti og það vildi ekki betur til en að ég hljóp á hurðina. Er enþá að drepast í hendinni eftir þessi skemmtinlegu samskipti við hurðina...

Týpístk Egill...

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 21:10:40 / egill23

The boy with the thorn in his side

Já já, var að koma til Íslands eftir stutta og hressandi dvöl í Kaupmannahöfn. Var þar yfir áramótin hjá pabba gamla og famelíuni þar. Massa fínt bara. Gaman að prufa að vera annarstaðar svona yfir áramótin... samt alveg sami stemmari þannig séð... kalkún, raketur, fyllerí og tilheyrandi viteysa. Alveg í lagi sko.

Var að spá í að setja mér smá áramótaheit og þið lesendur góðir verðið að bitchslapa mig ef að ég er ekki að fylgja því nógu vel eftir. Það er samt bannað að lemja mig að ástæðulausu... annars fáið þið júdó kick í hnéð! Judoooo kick!

Anyways, heitið er semsé þetta: "Ekki hugsa of mikið"

Gæti hljómað skringilega en ég hef átt við það vandamál að greina hluti of mikið og hugsa of mikið í stað þess að vera bara hamingjusamur og lifa fyrir daginn í dag...

ok, búið....

P.s. Ég má nú samt alveg hugsa þegar ég er að læra og svona...

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10